Job 7

1Er ekki líf mannsins á jörðinni herþjónusta og dagar hans sem dagar daglaunamanns? 2Eins og þræll, sem þráir forsælu, og eins og daglaunamaður, sem bíður eftir kaupi sínu, 3svo hafa mér hlotnast mæðumánuðir og kvalanætur orðið hlutskipti mitt. 4Þegar ég leggst til hvíldar, hugsa ég: ,,Nær mun ég rísa á fætur?`` Og kveldið er langt, og ég fæ mig fullsaddan á að bylta mér uns aftur eldir. 5Líkami minn er þakinn ormum og moldarskánum, húð mín skorpnar og rifnar upp aftur. 6Dagar mínir eru hraðfleygari en vefjarskyttan, og þeir hverfa án vonar. 7Minnstu þess, Guð, að líf mitt er andgustur! Aldrei framar mun auga mitt gæfu líta. 8Það auga, sem nú sér mig, mun eigi líta mig framar, augu þín leita mín, en ég er horfinn. 9Eins og skýið eyðist og hverfur, svo kemur og sá eigi aftur, er niður stígur til Heljar. 10Hann hverfur aldrei aftur til húss síns, og heimili hans þekkir hann eigi framar. 11Ég ætla þá ekki heldur að hafa taum á tungu minni, ég ætla að tala í hugarangist minni, ég ætla að kveina í sálarkvöl minni. 12Er ég haf eða sjóskrímsl, svo að þú þurfir að setja vörð yfir mig? 13Þegar ég hugsa með sjálfum mér: ,,Rúmið mitt skal hugga mig, hvílan mín létta mér hörmung mína`` 14þá hræðir þú mig með draumum og skelfir mig með sýnum, 15svo að ég kýs heldur að kafna, heldur að deyja en að vera slík beinagrind. 16Ég er leiður á þessu _ ekki lifi ég eilíflega _, slepptu mér, því að dagar mínir eru andartak. 17Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils og að þú snúir huga þínum til hans? 18að þú heimsækir hann á hverjum morgni og reynir hann á hverri stundu? 19Hvenær ætlar þú loks að líta af mér, loks að sleppa mér, meðan ég renni niður munnvatninu? 20Hafi ég syndgað _ hvað get ég gert þér, þú vörður manna? Hvers vegna hefir þú mig þér að skotspæni, svo að ég er sjálfum mér byrði? 21Og hví fyrirgefur þú mér eigi synd mína og nemur burt sekt mína? Því að nú leggst ég til hvíldar í moldu, og leitir þú mín, þá er ég eigi framar til.
Copyright information for Icelandic